- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Barnamenningarsjóður hefur úthlutað styrkjum til tveggja verkefna í Reykjanesbæ. Listasafn Reykjanesbæjar hlýtur 5 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Hinsegin litir framtíðarinnar og BAUN, Barna og ungmennahátíð í Reykjanesbæ, hlýtur 1,3 milljóna króna styrk til áframhaldandi uppbyggingar hátíðarinnar.
Verkefnið Hinsegin litir framtíðarinnar er metnaðarfullt fræðslu- og listsköpunarverkefni sem miðar að því að efla listræna sköpun, gagnrýna hugsun og samfélagsvitund barna og ungmenna. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem börn og ungmenni geta tekið virkan þátt í menningarlífi samfélagsins og látið rödd sína heyrast í gegnum skapandi vinnu.
Verkefnið leggur sérstaka áherslu á lýðræðislega þátttöku barna í menningu og samfélagi og styður við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Með þátttöku í verkefninu eru börn hvött til að setja fram eigin hugmyndir, spurningar og sjónarhorn og taka þátt í samtali um list, samfélag og lífið sjálft.
Sérstök áhersla verður lögð á að skapa öruggt og aðgengilegt rými fyrir jaðarsetta hópa. Þar vegur samstarf við Hinsegin Plútó, félagasamtök fyrir hinsegin ungmenni á Suðurnesjum, þungt. Samstarfið skapar ungmennum tækifæri til að vinna með eigin upplifanir og sjálfsmynd í skapandi samhengi þar sem virðing, fjölbreytileiki og þátttaka eru í forgrunni.
Í gegnum verkefnið fá börn og ungmenni tækifæri til að vinna með fjölbreytt listform, þar á meðal teikningu, málverk, þrívíð verk, ljósmyndun og myndbandagerð. Með því að vinna út frá verkum samtímalistamanna á sýningum safnsins fá þátttakendur innsýn í ólíkar leiðir listamanna til að skoða samfélagið og tilveruna. Börnin eru hvött til að þróa eigin hugmyndir og túlkanir og læra að líta á list sem lifandi tungumál til að tjá tilfinningar, spurningar og hugmyndir um heiminn.
BAUN, Barna og ungmennahátíð í Reykjanesbæ, hlýtur jafnframt 1,3 milljóna króna styrk úr Barnamenningarsjóði. Hátíðin hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir skapandi starf barna og ungmenna í sveitarfélaginu og stuðlar að aukinni þátttöku þeirra í menningar- og listalífi.
Styrkurinn mun nýtast til áframhaldandi þróunar hátíðarinnar og fjölbreyttrar dagskrár sem gefur börnum og ungmennum tækifæri til að njóta menningar, taka þátt í skapandi verkefnum og koma eigin hugmyndum á framfæri.
Úthlutun Barnamenningarsjóðs er mikilvæg viðurkenning á öflugu barna- og ungmennastarfi í Reykjanesbæ og styrkir enn frekar þá sýn að börn og ungmenni séu virkir þátttakendur í menningarlífinu í bænum!
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)