Fræðslufundur með Bjarna fornleifafræðingi 4. mars í Duushúsum

Fræðslufundur haldinn í Bíósal Duushúsa, miðvikudaginn 4. mars kl. 17.30

Gestur fundarins er Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur sem mun segja frá rannsóknum sínum í Höfnum sem hófust árið 2009. Bjarni mun fara yfir gang rannsóknanna og kynna þær niðurstöður sem liggja fyrir.

Nokkuð ítarlegar rannsóknir hafa farið fram á aldri rústanna og einnig hefur verið skoðað hvers eðlis búsetan var. Áhugaverðar tilgátur hafa komið fram til dæmis að ekki sé um venjulegt bændabýli að ræða heldur sé hér að finna könnunarbúðir sem menn nýttu við að kanna landshagi og til að nýta t.d. hvaltennur og rostungstennur sem voru afar verðmætar á þessum tímum.