Framboð til sveitastjórnakosninga

Sveitastjórnakosningar í Reykjanesbæ fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

Skil framboða og meðmæla
Framboðslistar verða mótteknir föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:00–12:00 á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar, Grænásbraut 910.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar óskar eftir að framboðsaðilar nýti rafrænt meðmælakerfi á Ísland.is til að safna og skrá meðmæli með framboðslista.

Skilyrði framboðslista
Samkvæmt samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar nr. 622/2019 skal bæjarstjórn skipuð ellefu fulltrúum. Á framboðslista skulu því vera að lágmarki 11 nöfn og að hámarki 22 nöfn.

Framboðslista skal fylgja

  • Skrifleg yfirlýsing frambjóðenda um að þeir hafi samþykkt að vera á listanum.
  • Rafræn meðmæli a.m.k. 80 kjósenda í Reykjanesbæ. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista.

Um nánari skilyrði og framkvæmd fer samkvæmt ákvæðum kosningalaga nr. 112/2021.
Nánari upplýsingar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram er að finna á kosning.is.

Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar
Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir
Guðrún Ingibjörg Ragnarsdóttir
Magnea Herborg Björnsdóttir