Framkvæmdastjórar kvaddir

Framkvæmdastjórarnir ásamt bæjarstjóra.
Framkvæmdastjórarnir ásamt bæjarstjóra.

Nú um mánaðarmótin kvöddu nokkrir af framkvæmdastjórum Reykjanesbæjar formlega eftir samtals 189 ára starf.

Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri, hætti eftir 18 ára starf hjá Reykjanesbæ. Hjördís Árnadóttir, félagsmálastjóri, eftir 44 ára starf,  Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari, eftir 29 ára starf, Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri atvinnu- og hafnasviðs, sem lætur af störfum um næstu mánaðarmót, eftir 40 ára starf og Stefán Bjarkason, framkvæmdastjóri Íþrótta- og tómstundasviðs, eftir 28 ára starf.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, kvaddi þá formlega og færði þeim þakkir fyrir vel unnin störf í þágu bæjarbúa.

Meðfylgjandi mynd var tekin við það tækifæri.