Framkvæmdir við Njarðar- og Faxabraut

Colas stefnir að því að fræsa eftirfarandi kafla föstudaginn 25. ágúst:

  1. Njarðarbraut, um er að ræða hægri akrein Njarðarbraut til norðurs. Kaflinn afmarkast af Hjallaveg og Hafnarbraut. Áætlaður verktími er frá 09:00-11:00
  2. Faxabraut/Sólavallagata, kaflinn afmarkast frá Hringbraut, Hólabraut og Sólvallagötu. Áætlaður verktími er frá 11:00-15:00.

Nánari útskýringar á framkvæmdasvæði má sjá á myndunum hér fyrir neðan.

Yfirverkstjóri malbikunar er Stefán í síma: 660-1922
Verkstjóri lokunar er Ingvi í síma: 660-1921