- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Frístundastyrkur Reykjanesbæjar hefur fengið nýtt heiti, en styrkurinn hét áður Hvatagreiðslur. Frístundastyrkurinn er árlegur styrkur sem Reykjanesbær veitir foreldrum og forsjáraðilum barna til að styðja við þátttöku þeirra í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og listastarfi.
Styrkurinn dregst beint frá æfinga- eða námskeiðsgjöldum þegar barn er skráð í viðurkennt starf og hefur nú verið hækkaður fyrir börn. Styrkurinn nemur nú 50.000 krónum á ári fyrir börn á aldrinum 4 til 18 ára með lögheimili í Reykjanesbæ.
Frístundastyrkurinn stendur einnig íbúum 67 ára og eldri til boða. Fyrir þann hóp nemur styrkurinn 45.000 krónum á ári og nýtist hann við skráningu í skipulagt tómstunda- og frístundastarf.
Reykjanesbær hvetur íbúa til að kynna sér rétt sinn og nýta frístundastyrkinn. Mikilvægt er að hafa í huga að ónotaður styrkur fellur niður um áramót.
Nánari upplýsingar má finna hér.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)