- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Húsfyllir var í bíósal DUUS-húsa, þriðjudaginn 16.október, þegar Baldur Sigurðsson, dósent við Menntavísindasvið HÍ, flutti fyrirlestur um læsi, í tengslum við innleiðingu nýrrar Aðalnámskrár. Baldur hefur rýnt í hugtakið og skoðað hvernig það birtist í nýrri Aðalnámskrá grunnskóla þar sem læsi er túlkað í víðasta skilningi.
Baldur höfðaði til kennara um að halda orðaforðanum að börnum, forðast „orðfæðarstefnu“ eða flótta frá tungumálinu. Hann vísaði til kennarastarfsins og sagði að kennarinn væri lykillinn að námsárangri nemenda.
Baldur bað kennara að spyrja sig eftirfarandi spurninga:
Hvað eiga nemendur mínir að gera þegar þeir fara frá mér, í aðra skóla eða út í lífið?
Hvers konar lesendur vil ég að nemendur mínir verði?
Hvað get ég gert til að hafa áhrif á það?
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös