- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Vinna við aðgerðir Reykjanesbæjar vegna Covid 19 í fullum gangi.
Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í dag, 8. apríl, voru samþykktar breytingar á fjárfestingaráætlun bæjarfélagsins fyrir árið 2020. Breytingarnar felast í því að mannaflafrek verkefni eru sett í forgang og dregið úr öðrum sem ekki hafa jafn mikil jákvæð áhrif á atvinnumarkað. Jafnframt hefur bæjarstjóra verið falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins til þess að auka framkvæmdir um 460 miljónir króna, þannig að heildar áætlunin verði 1.160 milljónir króna. Þar fyrir utan stendur Reykjanesbær í framkvæmdum við Stapaskóla uppá 2 milljarða króna, hönnun nýs hjúkrunarheimilis fyrir 70 miljónir, Samanlagt mun Reykjanesbær því framkvæma fyrir rúma 3,2 milljarða á árinu.
Þessar breytingar eru liður í viðbrögðum bæjarfélagsins við þeim efnahagslegu áföllum sem nú ganga yfir. Viðbrögðin miðast við að fjölga störfum eins og hægt er, með það að markmiði að draga úr atvinnuleysi og ekki síður að vernda önnur störf í atvinnulífi svæðisins.
Ljóst er að meira þarf til og munu frekari viðbrögð koma fram á næstu vikum. Búist er við að atvinnuleysi í Reykjanesbæ muni verða yfir 24% í apríl. Ljóst er aðkoma ríkisins er nauðsynleg til þess að hægt verði að vernda velferð bæjarbúa á meðan þessi efnahagslegu áföll ganga yfir.
Í samhljóma bókun bæjarstjórnar frá fjarfundi hennar í gær segir: „Bæjarstjórn Reykjanesbæjar fagnar þeim almennu aðgerðum sem nú þegar hefur verið ráðist í en krefst þess að sérstaklega sé tekið tillit til þeirra svæða á Íslandi sem verst verða úti. Bæjarstjórn mun gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að standa vörð um velferð íbúa í gegnum þá erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag.“
Þó staðan sé svört og ljóst að erfiðir tímar eru framundan, má það ekki gleymast að ástæðan fyrir því að svæðið verður þetta illa úti núna er sú að flugvöllurinn tengir okkur með beinum hætti við alþjóðlegt efnahagslíf. Það þýðir jafnframt að tækifærin til framtíðar eru mjög mikil og það er ekkert sem bendir til þess að þessi samdráttur verði varanlegur.
Covid mun ekki breyta legu landsins, mitt á milli tveggja heimsálfa. Keflavíkurflugvöllur verður áfram tengipunktur í flugi á leið yfir Atlantshafið, með mikla möguleika til frekari þróunar, þar á meðal með beinu flugi til Asíu.
Nærsvæði flugvallarins mun því eftir sem áður eiga sömu tækifæri til framtíðar.
Kjartan Már Kjartansson
bæjarstjóri
Yfirlit yfir aðgerðir Reykjanesbæjar vegna Covid -19:
Í mars:
Í apríl:
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)