Fyrstu erlendu gestirnir í Hljómahöll

Fyrstu erlendu gestir Hljómahallar ásamt bæjarstjóra.
Fyrstu erlendu gestir Hljómahallar ásamt bæjarstjóra.

Jake og Malinda Freeman voru á leið heim til Bandaríkjanna á Laugardaginn. Þau áttu nokkra klukkutíma lausa sem þau notuðu til að spóka sig í Reykjanesbæ.
Þau sáu þá Hljómahöll og kíktu inn 90 mínútum fyrir formlega opnun hússins. Thomas Young framkvæmdastjóri hússins gaf sér auðvitað tíma mitt í öllum asanum til að  sýna þeim húsið. Ekki varð gleði þeirra minni þegar þau hittu fyrir bæjarstjóra Reykjanesbæjar Árna Sigfússon. Húsið ekki einu sinni opnað formlega og strax fari að laða að sér gesti.