Gætum að niðurföllum og þakrennum

Reykjanesbær
Reykjanesbær

Veðurspáin gerir ráð fyrir mikilli úrkomu í dag, fimmtudaginn 26. nóvember. Bæjarbúar eru því hvattir til þess að hreinsa frá niðurföllum nálægt húsum sínum og þakrennur sé þess þörf. Góður undirbúningur getur komið í veg fyrir að vatnselgur myndist á óhentugum stöðum og óþarfa vatnstjón.