Gestum og útlánum fjölgar á Bókasafni Reykjanesbæjar

Lesið í barnadeild
Lesið í barnadeild

Útlánaaukning á Bókasafni Reykjanesbæjar varð 6% milli áranna 2008 og 2009. Á sama tíma fjölgaði gestum og gangandi úr 300 í 321 á dag þrátt fyrir að þjónustutími hafi verið skertur úr 300 dögum í 281.

Árið 2009 voru að meðaltali 9,2 gögn lánuð til hvers íbúa í Reykjanesbæ en 8.7 árið 2008. Í árslok 2009 áttu 3597 lánþegar gild bókasafnskort en voru 3165 í árslok 2008.

Starfsfólk mun á árinu 2010 halda áfram að taka vel á móti gestum og veita góða þjónustu.

Bókasafn Reykjanesbæjar