- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Á föstudag var Bardagahöllin við Smiðjuvelli vígð. Í höllinni eru æfðar margvíslegar bardaga- og sjálfsvarnaríþróttir eins og júdó, hnefaleikar, taekwondo, jiu jitsu og glíma.
Við vígsluna ræddu forsvarsmenn deildanna um mikilvægi þess að hafa góða aðstöðu til iðkunar. Keppendur úr Reykjanesbæ í þessum greinum hafa verið að gera það gott og unnið til fjölda verðlauna bæði á Íslandi og erlendis. Árangur keppenda í teakwondo hjá tiltölulega ungri íþróttagrein hér í bæ hefur vakið eftirtekt. Þar hefur iðkun barna auk þess laðað marga foreldra að íþróttinni.
Þeir sem voru viðstaddir vígsluna fengu sýnikennslu í öllum greinunum. Oft mátti heyra andvarp frá áhorfendum þegar flogið var í lofti og glímukappar felldir. Allt fer að sjálfsögðu fram i mesta bróðerni og systraþeli.



Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)