Keflvískir taekwondo iðkendur með glæsilegan árangur á alþjóðlegum mótum

Á dögunum tóku níu keppendur úr Taekwondo deild Keflavíkur þátt í tveimur alþjóðlegum mótum í Lettlandi og unnu þar glæsileg verðlaun.

Fyrst var keppt á Evrópumóti Smáþjóða þar sem tíu þjóðir áttu þátttökurétt og skráðir voru tæplega 200 keppendur. Þar unnu þau Amir Maron Ninir og Heiða Dís Helgadóttir gullverðlaun, Þorsteinn Helgi Atlason hlaut silfur en Oliwka Waszkiewicz, Julia Marta Bator, Mikael Snær Pétursson, Ragnar Zihan Liu og Fjóla Sif Farestveit unnu öll til bronsverðlauna. 

Tveimur dögum síðar keppti hópurinn á Riga Open, fjölmenntu alþjóðlegu stigamóti þar sem allar þjóðir geta tekið þátt. Þar voru um 500 keppendur skráðir til leiks. Amir Maron stóð þar aftur uppi sem sigurvegari eftir frábæra frammistöðu gegn Evrópumeistara ungmenna frá fyrra ári. Einnig vann Viktor Berg Stefánsson bronsverðlaun.

„Þetta er mjög mikilvæg reynsla upp á framtíðina að gera og það er mjög gaman að sjá að við erum á pari við margar góðar þjóðir í Evrópu,“ segir Helgi yfirþjálfari.

Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með þennan framúrskarandi árangur!