Glæsilegt Nettómót í körfubolta 2012

Frá Nettómóti
Frá Nettómóti

Mig langar að koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem stóðu að undirbúningi og framkvæmd Nettómótsins í körfubolta sem fram fór í Reykjanesbæ helgina 3.-4. mars sl.

Sérstakar þakkir færi ég forstöðumönnum og starfsfólki íþróttamannvirkja bæjarins svo og forsvarsmönnum unglingaráða körfuknattleiksdeilda UMFN og Keflavíkur, sem störfuðu saman að þessu móti og sáu til þess að framkvæmdin var íþróttafélögunum og bæjarfélaginu okkar til mikils sóma.

Alls tóku rúmlega 1100 börn þátt í mótinu ásamt fjölskyldum sínum víðsvegar að af landinu og er mótið það stærsta sem haldið er á hverju ári.

Það er ljóst að til þess að slík framkvæmd gangi upp þarf góðvilja og samstarf margra aðila og má þar nefna Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar og starfsfólk grunnskólanna þar sem keppendur, þjálfarar og foreldrar gistu.
Síðast en ekki síst má ekki gleyma foreldrum barnanna sem tóku virkan þátt í leik þeirra á þessu móti, hvort sem þeir voru í hlutverkum liðsstjóra, dómara eða áhorfenda.

Það var unun að fá að taka þátt í  lokaathöfn Nettómótsins og upplifa þar hvernig gleðin skein úr andlitum keppenda, sem allir fengu viðurkenningapening og körfubolta fyrir þátttökuna.

Svo glumdi í húsinu þegar allir krakkarnir kölluðu einum rómi:
TAKK FYRIR OKKUR !

Mig langaði að taka undir þessi orð. 

Stefán Bjarkason
Framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs
Reykjanesbæjar

Myndirnar voru teknar á Nettómótinu 2012.  Einnig viljum við benda á myndasafn á Facebook síðu bæjarins á meðfylgjandi slóð https://www.facebook.com/reykjanesbaer