- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nemendur í 5.-7. bekk í Háaleitisskóla hafa unnið hörðum höndum að undirbúningi fyrir Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda undir leiðsögn Jóns Bjarka, nemanda í tæknifræði hjá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs.
Háaleitisskóli, Keilir og Kadeco hafa verið í samstarfi í vetur um að efla nýsköpun á Ásbrú meðal grunnskólanemenda með því að taka höndum saman og gera nemendum Háaleitisskóla kleift að taka þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda.
Verkefnið hefur gengið vonum framar og hefur einn nemandi skólans, Gísli Freyr Björnsson, verið valinn einn af 45 þátttakendum keppninnar til að taka þátt í vinnusmiðju á vegum Nýsköpunarkeppninnar. Alls tóku 1800 nemendur af landinu þátt í keppninni í ár og einungis 45 nemendur fá tækifæri til að útfæra sína hugmynd enn frekar. Vinnusmiðjan er haldin í húsnæði Háskólans í Reykjavík.
Til stendur að útfæra þessa reynslu frekar og hafa hana árvissa enda nýsköpun öllum mikilvæg.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)