Gleði á hrekkjavökunni!

Hrekkjavakan nálgast og í Reykjanesbæ verður svo sannarlega nóg um að vera fyrir fjölskyldur og börn á öllum aldri.
Það er margt í boði en við hvetjum ykkur einnig til að kynna ykkar hverfasíður bæjarins þar sem má finna frekari áætlanir í hverfunum og hrekkjavökukort.

Hér að neðan má sjá helstu viðburði í bænum: 

Fimmtudagur 30. október

Hrekkjavöku luktagerð
Kl. 15:30 
Stapasafn – Dalsbraut 11
Fjölskyldum er boðið að koma og búa til sína eigin luktir fyrir hrekkjavökuna.
Þátttakendur þurfa að koma með sínar eigin krukkur til skreytinga en annað efni verður á staðnum.

Hrekkjavökubingó
Kl. 13:00
Hvammur – Björgin Geðrækt
Hrekkjavökubingó með glæsilegum vinningum og hryllilegri búningakeppni.
Frábær stemning og góðir vinningar í boði.


Föstudagur 31. október - Hrekkjavakan

Risa draugahús í Fjörheimum
Kl. 17:00–22:00
Fjörheimar – í samstarfi við nemendaráð Myllubakkaskóla og grunnskóla Reykjanesbæjar
Stærsta og ógeðslegasta draugahús sem sést hefur í Reykjanesbæ rúllar aftur fram á sjónarsviðið! Ekki missa af þessari hryllilega skemmtilegu upplifun.

Gengið í hús - "Grikk eða gott"
Skoðið hverfasíður bæjarins fyrir fleiri upplýsingar. 


Laugardagur 1. nóvember

Opin listsmiðja í grímugerð
Kl. 13:00–14:00
Listasafn Reykjanesbæjar
Gestir geta búið til sínar eigin hrekkjavökugrímur undir leiðsögn Freyju Eilífar. Öll efni á staðnum.

Halloween partý í Fimleikaakademíunni
Fimleikaakademían

  • 0–2 ára kl. 14:30–16:00 (litli salur) – í fylgd fullorðinna

  • 3–5 ára kl. 14:30–16:00 (stóri salur) – í fylgd fullorðinna

  • 6–12 ára kl. 16:30–18:00

Aðgangseyrir: 1.000 kr. Fjáröflun rennur í æfingaferð  keppnishópa næsta sumar.


Sunnudagur 2. nóvember

Gengið í hús - "Grikk eða gott"
Skoðið hverfasíður bæjarins fyrir fleiri upplýsingar. 

Orgel og draugahús í Keflavíkurkirkju
Kl. 18:00–20:00
Keflavíkurkirkja
Börnum er boðið í grikk eða gott í kirkjuna á sjálfri hrekkjavökunni.
Organisti spilar drungalega orgeltónlist og óvæntar persónur úr draugasögum Íslands geta orðið á vegi gesta.
Spennan og undrunin ráða ríkjum – komið ef þið þorið.


Mánudagur 3. nóvember

Hrekkjavöku­tónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Kl. 17:30
Berg, Hljómahöll
Skemmtilegir tónleikar þar sem strengjasveitir, píanóleikarar, flautuleikarar og fleiri nemendur tónlistarskólans stíga á svið í hrekkjavökustemningu.


Við óskum ykkur hryllilegrar hrekkjavöku í Reykjanesbæ!
Ef það er vilji fyrir því að bæta við viðburðum í þennan lista sendið þá endilega á krb@reykjanesbaer.is