- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þann 4. mars næstkomandi mun unglingaráð Fjörheima halda góðgerðartónleika í Hljómahöll til styrktar Minningarsjóði Ölla.
Unglingaráð Fjörheima samanstendur af ungum og öflugum ungmennum í 8.-10. bekk í Reykjanesbæ en hlutverk þeirra er að skipuleggja dagskrá, halda viðburði og taka þátt í ýmsum öðrum störfum sem snerta félagsmiðstöðina. Einnig hefur unglingaráðið staðið í ströngu síðustu vikur við að afla styrkja frá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu til þess að tónleikarnir gætu orðið að veruleika.
Unglingaráðið kaus að styrkja Minningarsjóð Ölla því þau telja að íþróttir og tómstundarstarf sé besta forvörnin fyrir ungmenni og þess vegna liggur þetta málefni þeim nærri. Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.
Hugmynd þeirra var að fá til liðs við sig tónlistarfólk sem á rætur sínar að rekja til Reykjanesbæjar á einn eða annan hátt. Þeir tónlistarmenn sem munu stíga á svið eru Valdimar Guðmundsson ásamt Ásgeiri Aðalsteinssyni gítarleikara, Már Gunnarsson, Ísold Wilberg, Hljómsveitin Demo, Frid og Sesselja Ósk Stefánsdóttir.
Tónleikarnir verða í Hljómahöll þann 4. mars frá kl. 20:00 - 22:00. Húsið opnar kl. 19:00.
Miðasala er á tix.is og er miðaverð 3.000 krónur. Allur ágóði rennur til Minningarsjóðs Ölla.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös