Góður árangur hjá Nes í Vestmannaeyjum

Íþróttafélagið Nes á Suðurnesjum fór á Íslandsmót í einstaklingskeppni í boccia
til Vestmannaeyja þann 7. október síðastliðinn. Alls fóru 25 keppendur frá íþróttafélaginu og var uppskeran eitt gull og tvö silfur að þessu sinni. Það voru þau Arnar Már Ingibjörnsson sem vann gullið í 1. deild,  Konráð Ragnarsson vann silfur í sömu deild og svo vann Sóley Valsdóttir silfur í 6. deild.