Góður árangur sundmanna á Landsbankamóti í Vatnaveröld

Síðastliðna helgi var Landsbankamótið í sundi haldið í Vatnaveröld í
Reykjanesbæ. Rúmlega 500 sundmenn tóku þátt í mótinu frá 14 félögum. Mótið
er það stærsta sem haldið er hér á landi af félagsliði og er alltaf mjög
skemmtilegt með Eurovison stemmningu bæði á bakka og í Holtaskóla þar sem
liðin gistu.

Sundmenn kepptu í fimm hlutum. Átta ára og yngri kepptu á föstudeginum og
endaði sá hluti á hinum sívinsæla sjóræningjaleik þar sem nokkrir
sjóræningjar höfðu stolið þátttökupeningunum og sundmennirnir þurftu að
bjarga þeim úr klóm þeirra. Gaman var að sjá sundmenn framtíðarinnar synda
og var mikill fjöldi áhorfenda í Vatnaveröld.

Sundmenn 9-12 ára kepptu svo fyrir hádegi laugardag og sunnudag í 25m laug.
Þeir fengu líka bíóferð á milli hluta og fóru á The Avengers eftir hádegi á
laugardaginn.  Mikið var um bætingar á mótinu og fengu þeir sundmenn sem
bættu sína tíma sérstök verðlaun.

Sundmenn 13 ára og eldri kepptu svo í 50m laug eftir hádegi laugardag og
sunnudag og skelltu sér svo í bíó á Avengers þegar þeir áttu frí. Íris Ósk
vann bikarinn fyrir flest FINA stig í 200 m sundi í flokki 13-14 ára og
Árni Már fékk verðlaun fyrir stigahæsta sundið á mótinu (FINA stig) í
karlaflokki. Íris Ósk náði einnig á NÆM í 200 m baksundi 
seinnipartinn á sunnudaginn, frábært sund hjá henna þar sem hún var ein að
synda með stóran hóp stuðningsmanna sem hvatti hana áfram. Vel gert!
Mótið var mjög árangursríkt og náðum við nánast að tvöfalda fjölda AMÍ
lágmarka sem náðst hafa fyrir mótið sem framundan er og ótrúlegur fjöldi
var að bæta tíma sína.