- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Gos er hafið á Reykjanesi. Staðsetning gossins er innan hraunsins sem rann í síðasta gosi. Kvika hefur náð upp á yfirborð jarðar á Reykjanesskaga, nánar tiltekið í vestanverðum Meradölum – um 1,5 km norður af Stóra-Hrút. Vísindafólk er á leiðinni á staðinn með þyrlu landhelgisgæslunnar til að leggja mat á stöðuna.
Almenningur er beðinn um að halda sig fjarri gossvæðinu á meðan viðbragðsaðilar eru að ná áttum, að því er fram kemur í færslu lögreglunnar.
Vísindafólk og fulltrúi frá Almannavörnum fóru í könnunarflug yfir gosstöðvarnar til að meta umfang eldgossins. Það er mat þeirra að eldgosið sé fremur lítið og ógni ekki byggð eða mannvirkjum.
Í kjölfar könnunarflugsins var farið yfir tiltæk gögn og ákveðið af Ríkislögreglustjóra í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum að lækka almannavarnastig úr neyðarstigi niður á hættustig.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)