Gosmengun mælist yfir Höfnum 26. mars

Síðdegis í dag (þriðjudagurinn 26. mars) er útlit fyrir austan 5-10 m/s og mengunin berst þá til vesturs, m.a. yfir Svartsengi og Hafnir.

Mikil mengun hefur mælst á mælum Umhverfisstofununar í Höfnum á síðustu klukkustundum og hafa hæstu gildi hafa farið yfir 1000 míkrógrömm á rúmmeter, sem teljast óholl loftgæði fyrir viðkvæma.
 
Vegna þessa er mælt með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu. Hægt er að fylgjast með loftgæðum inn á vef Umhverfisstofnunar www.loftgaedi.is
 
Íbúar eru einnig hvattir til að fylgjast með með gasmælingarspá á vef Veðurstofu Íslands og nálgast leiðbeiningar inn á vef Umhverfisstofunar.