Grænfánaafhending í Tjarnarseli

Grænfána flaggað á Tjarnarseli.
Grænfána flaggað á Tjarnarseli.

Föstudaginn síðastliðinn fékk Tjarnarsel afhentan Grænfánann í fjórða sinn  við skemmtilega athöfn. Elstu börnin á Sunnuvöllum tóku á móti fánanum frá verkefnisstjóra Landverndar sem talaði til Tjarnarselsbarnanna eftir að þau höfðu skemmt henni með fallegum söng og þegar nýji Grænfáninn okkar var dreginn að húni sungu allir saman Grænfánalagið okkar.

Grænfáninn er viðurkenning Landverndar til þeirra skóla sem þykja hafa unnið vel og markvisst að umhverfismálum. Hann er veittur annað hvert ár og þarf leikskólinn að setja sér markmið á tveggja ára fresti.

Í ár fékk Tjarnarsel Grænfánann fyrir þróunarverkefnið; Áskorun og ævintýri en markmið þess er að umbylta og þróa náttúrulegt útileiksvæði með hliðsjón af nýrri Aðalnámskrá Menntamálaráðuneytisins og innleiða starfsaðferðir sem byggja á lýðræði, jafnrétti, sköpun og sjálfbærni.