Guðríður leikskólafulltrúi kvödd

Guðríður ásamt leikskólastjórum
Guðríður ásamt leikskólastjórum

Leikskólastjórar og sérkennslufulltrúi kvöddu Guðríði Helgadóttur leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar með virktum í skemmtilegu hófi á Vocal á Flug Hóteli í gær.

Guðríður lætur af störfum eftir 14 ára starf á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar og óskar Reykjanesbær henni velfarnaðar í nýjum verkefnum sem framundan eru.