- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nemendur í 9. bekk í Njarðvíkurskóla í Reykjanesbæ fengu óvenjulega vinarbeiðni um daginn þegar Guðrún Ósvífursdóttir óskaði eftir því að fá að vera vinur þeirra á Facebook. Allir nemendurnir samþykktu vinarbeiðnina þar sem þeim fannst Guðrún áhugaverð, hæfilega frökk og margbrotin manneskja. Guðrún er að sögn afar opinská um líf sitt og segir vinum sínum frá leyndarmálum í lífi sínu, hvernig persóna hún er, hvaða álit hún hefur á fjölskyldu sinni, ættmennum og nágrönnum, hvernig hún býr og hvað hún gerir.
Ásgerður Þorgeirsdóttur skólastjóri segir um skemmtilega nýjung í kennsluháttum að ræða sem ætlað er að auka áhuga nemenda á Laxdælu sem þeir eru að fara að lesa. Ásgerður segist stuðning Guðrúnar ómetanlegan og býst við að Guðrúnu takist að vekja meiri áhuga nemenda á bókinni sem vonandi drukknar ekki í jólabókaflóðinu.
Á Íslandi eru allir á Facebook og eru fornir kvenskörungar þar engin undantekning.
Meðfylgjandi mynd var tekin við fornleifauppgröft í Höfnum þar sem meðal annars var tekið á móti börnum úr Njarðvíkurskóla. Engum dettur þó í hug að þarna hafi verið heimili Guðrúnar Ósvífursdóttur.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)