Hærri skattekjur af nýjum störfum fljótar að skila sér

Horft yfir Helguvík og Helguvíkursvæðið.
Horft yfir Helguvík og Helguvíkursvæðið.

Ef laun íbúa breyttust t.d. til samræmis við laun íbúa Mosfellsbæjar, myndu
árstekjur bæjarsjóðs vera um 970 milljónum kr. hærri. Þetta kom fram á
íbúafundi sem Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar efndi til í Njarðvíkurskóla fyrir helgi og er einn af 6 fundum sem árlega eru haldnir í Reykjanesbæ á vorin.

Einnig kom fram á fundinum að Reykjanesbær er enn í hópi
sveitarfélaga með lægstu skatttekjur á íbúa. Þær eru um 513 þúsund kr. á
íbúa bæði með skatttekjum og greiðslum úr jöfnunarsjóði. Tekjur bæjarsjóðs
gætu stigið mjög hratt ef fyrirhuguð  atvinnuverkefni halda áfram að koma
inn, því þau bjóða nánast öll verulega hækkun launa frá meðaltalinu. Takist
starfsfólki flugstöðvar t.d. að fá hærri laun, hefur það einnig jákvæð
áhrif á bæjarsjóð vegna fjölda starfsmanna sem býr í bænum. Á íbúafundinum
kom fram að samkvæmt launakönnun sem bærinn lét framkvæma í fyrrahaust var
um fjórðungur vinnandi íbúa með einungis um 250 þúsund kr. í mánaðarlaun.
Meðallaun fjölbreyttra starfa t.d. í Helguvík miðast við 5-600 þúsund kr.
mánaðarlaun.

Árni tók sem dæmi að væru skatttekjur hvers íbúa svipaðar og t.d. í
Mosfellsbæ, sem nær að veita góða þjónustu fyrir lítinn kostnað, væri
bæjarsjóður Reykjanesbæjar um 970 milljónum kr. hærri á síðasta ári.

„Við stefnum því ótrauð á að koma þessum störfum á legg. Þegar atvinnulífið
er í blóma eru okkur allar leiðir færar“, segir bæjarstjóri.

Næsti íbúafundur er í kvöld í Akurskóla í Innri Njarðvík.