Hagræðing hjá Reykjanesbæ: óskað eftir tillögum frá íbúum

Ráðhús Reykjanesbæjar
Ráðhús Reykjanesbæjar

Ágæti íbúi Reykjanesbæjar

Undirbúningur atvinnuverkefna sem skapa munu á þriðja þúsund íbúum vel launuð störf, hefur enn dregist með alvarlegum afleiðingum fyrir tekjumyndun bæjarsjóðs á þessu ári. Hér er um að ræða uppbyggingu álvers, kísilvers, gagnavers, ECA flugverkefni og einkasjúkrahúss, svo helstu stórverkefnin séu nefnd. Reykjanesbær hefur á undanförnum árum unnið dyggilega að stuðningi við uppbyggingu þessara verkefna og áætlaði að skatttekjur af störfum þeim tengdum tækju að berast bæjarsjóði á seinni hluta þessa árs. Það er ekki að gerast.

Reykjanesbær hefur undanfarin ár treyst á að þannig tækist að snúa hinu mikla atvinnuleysi yfir í öfluga atvinnuuppbyggingu og þess vegna treyst sér til að fjármagna ýmis verkefni af arðgreiðslum og með því að ganga á eignir sveitarfélagsins. Þótt enn sé svigrúm til þess, er ógjörningur að halda slíku áfram þegar alger óvissa ríkir nú um framvindu margra þessara verkefna. Þrátt fyrir gott aðhald í rekstri er nauðsynlegt að auka niðurskurð verulega. Leitað er til þín um ábendingar sem geta sparað í rekstri.

Vinsamlega sendu ábendingar þínar á netfangið reykjanesbaer@reykjanesbaer.is eða komdu þeim til skila í Þjónustuver Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 fyrir mánudaginn 27. september n.k. Einnig er hægt að senda inn ábendingar á mittreykjanes.is.

Við þökkum þér fyrir þátttökuna.

Árni Sigfússon
bæjarstjóri