Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Lúðrasveit
Lúðrasveit

Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir þriðjudaginn 16. nóvember nk. kl.19.30 í Stapa, Hljómahöllinni. Fram koma bæði yngri og eldri sveitir.

Það kennir ýmissa grasa í efnisskrá sveitanna á þessum tónleikum því fjölbreytileikinn ræður ríkjum eins og alltaf. Sem dæmi þá er gaman að geta þess, að elsta sveitin verður með sérstakt þema á tónleikunum, sem er kvikmyndatónlist og m.a. mun sveitin flytja tónlist úr kvikmyndunum Aladdin, Wizard of Oz og Lion King.

Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti.