- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ verður haldin í áttunda sinn dagana 28. september til 4. október. Boðið verður upp á fjölda viðburða um allan bæ í vikunni sem flestir eru þátttakendum að kostnaðarlausu.
Skólarnir í Reykjanesbæ bjóða margir nemendum sínum upp á skemmtilega fræðslu og heilsusamlega upplifun í vikunni en jafnframt eru margvíslegir opnir viðburðir. Má nefna jakkafatajóga, örnámskeið um heilsulæsi, námskeið til að hjálpa reykingamönnum að losna við nikótínfíkn, fyrirlestur um hvað sé að vera heilbrigður og kynningar á íþróttagreinum og námskeiðum sem íþróttafélög og líkamsræktarstöðvar bjóða.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös