Heilsu- og forvarnarvika hefst í dag

Epli er hollt og gott
Epli er hollt og gott

Heilsu- og forvarnarvika verí Reykjanesbæ hefst í dag og stendur til 3. október n.k. en verkefnið er liður í heilsu- og forvarnarstefnu Reykjanesbæjar.

Fjölbreytt dagskrá
Markmið vikunnar er að efla vitund starfsmanna og allra bæjarbúa um heilsu og forvarnir og taka flestar stofnanir bæjarins þátt sem og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu.

Dagskrá heilsu- og forvarnarvikunnar hefur aldrei verið viðameiri og má þar nefna uppákomur í leikskólum, stafagöngu, heilsumælingar, opin hús, geðræktargöngu Bjargarinnar, skákmót, heilsuráðgjöf, hjólaferð og hlaupaþjálfun en að auki verður boðið upp á fjölda fróðlegra fyrirlestra s.s. fyrirlestur íþróttamannsins Loga Geirssonar, Klemenz Sæmundssonar og heilsufræðingsins Matta Ósvald.

Dagskrá Heilsu- og forvarnarvikunnar má finna á slóðinni reykjanesbaer.is/heilsu- og forvarnarvika en einnig verður fjallað um viðburði á Facebook hjá Reykjanesbæ.

Reykjanesbær hvetur alla bæjarbúa til þátttöku í Heilsu- og forvarnarviku með það að markmiðið að fræðast og hafa gaman.