Heilsuleikskólinn Heiðarsel fagnar 25 ára afmæli

Úr skrúðgöngu.
Úr skrúðgöngu.

Heilsuleikskólinn Heiðarsel fagnaði 25 ára afmæli í gær. Margt var til gamans gert á afmælisdaginn, m.a. farið í skrúðgöngu um hverfið undir trumbuslætti.

Tveir af starfsmönnum skólans, þær Ólöf Sigurrós Gestsdóttir leikskólakennari og Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir matartækir, voru heiðraðar á afmælisdaginn en þær hafa verið starfsmenn frá opnun skólans.

Ólöf Sigurrós Gestsdóttir leikskólakennari og Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir matartæknir