Yfir 100 ungmenni frá Reykjanesbæ keppa á heimsmeistaramótinu í dansi

Myndir í fréttinni eru frá Dance World Cup í fyrra.
Myndir í fréttinni eru frá Dance World Cup í fyrra.

Tveir danshópar frá Reykjanesbæ eru á leið á Dance World Cup, stærstu alþjóðlegu danskeppni heims fyrir börn og ungmenni, sem haldin verður í borginni Burgos á Spáni dagana 3.–12. júlí.

106 ungmenni frá Reykjanesbæ taka þátt í keppninni sem hluti af íslenska landsliðinu. Dansararnir koma úr danshópunum Team Danskompaní og Ungleikhúsið í Reykjanesbæ og munu stíga á svið ásamt þátttakendum víðsvegar að úr heiminum.

Á mótinu er mjög hörð keppni hæfileikaríkra dansara í öllum dansstílum, þar á meðal ballett, nútímadans, jazz, tap, söng- og dansi, street/hip hop og þjóðdansi en lögð er sérstök áhersla á hópdansa til að sem flest börn fái tækifæri til að taka þátt. Markmið mótsins er að koma saman dönsurum frá öllum heimshornum og skapa langvarandi vináttu. Á hverju ári sækjast yfir 120.000 keppendur eftir því að tryggja sér þátttökurétt á mótinu, þannig að samkeppnin er gríðarlega hörð.

Í aðdraganda mótsins halda báðir danshóparnir styrktarsýningar þar sem gestum gefst tækifæri til að sjá einstök atriði og styðja við bakið á þessum hæfileikaríku ungmennum. Ungleikhúsið verður með styrktarsýningu á morgun, þriðjudaginn 24. júní kl. 19:00 í IceMar höllinni. Miða er hægt að kaupa hér
Team Danskompaní heldur sína árlegu styrktarsýningu á miðvikudaginn 25. júní kl. 18:30 í Andrews Theatre. Miðasala fer fram hér

Við hvetjum auðvitað alla íbúa til að mæta á þessar sýningar og sjá dansara á heimsmælikvarða.

Það er sannarlega tilhlökkunarefni að fylgjast með þessum ungu dönsurum keppa á jafn stórum vettvangi og erum við svo sannarlega rík að eiga svona dugleg, metnaðarfull og hæfileikarík ungmenni í Reykjanesbæ og óskum þeim góðs gengis á Spáni!