- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Helga Þórsdóttir hefur verið ráðin í starf safnstjóra Listasafns Reykjanesbæjar. Hún mun hefja störf í byrjun febrúar.
Helga er með brottfararpróf frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands ásamt því að hafa lokið M.A. í myndlist frá De l'ecole Nationale d'Arts de Cergy-Pontoise Mention og M.A. í menningarfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún einnig stundað nám í innanhússarkitektúr í Frakklandi og leiðsögu í Leiðsögumannaskólanum í Kópavogi.
Hún hefur starfað í Byggðasafni Vestfjarða frá árinu 2016 m.a. sem forstöðukona. Þá hefur hún einnig komið víða við í sýningarstjórn og textaskrifum um myndlist.
Við bjóðum Helgu velkomna til starfa.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös