Herstöðin sem kom og fór

Sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar: Herstöðin sem kom og fór verður opnuð laugardaginn 6. febrúar í Gryfjunni Duus Safnahúsum. Sýningin stendur til 24. apríl 2016.

Sýningin fjallar um sögu Keflavíkurstöðvarinnar, sem hófst á stríðsárunum með byggingu tveggja flugvalla, rúmlega hálfrar aldar sögu varnarliðsins og hvað gerðist eftir að herstöðin lokaði. Í ár eru 10 ár liðin síðan herstöðinni var lokað.

Duus Safnahús er opin alla daga kl. 12:00 til 17:00.