- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir hefur verið ráðinn verkefnisstjóri fjölmenningarmála hjá Reykjanesbæ. Hilma lauk félagsráðgjafanámi B.A. árið 2006 með starfsréttindum frá Háskóla Íslands og diplómanámi í fjölmenningarfélagsráðgjöf 2009.
Hilma hefur starfað hjá Velferðarráðuneytinu frá árinu 2012 sem sérfræðingur í málefnum innflytjenda. Fyrir þann tíma starfaði hún sem félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg og sinnti þar helst málefnum innflytjenda og flóttafólks. Hún hefur verið stundakennari við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands frá árinu 2010 og kom að stofnun fagdeildar fjölmenningarfélagsráðgjafa árið 2011.
Hilma er með víðtæka þekkingu og reynslu í málaflokknum sem mun nýtast vel í uppbyggingu málaflokksins hjá sveitarfélaginu. Við bjóðum Hilmu velkomna til starfa.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös