Hirðing jólatrjáa

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar munu annast hirðingu jólatrjáa frá 6. til 14. janúar
Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar munu annast hirðingu jólatrjáa frá 6. til 14. janúar

Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar munu annast hirðingu jólatrjáa frá 6. - 14. janúar.

Þeir íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og verða þau þá fjarlægð.

Eftir 14. janúar eru íbúar beðnir um að snúa sér til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Þá eru íbúar sem fyrr hvattir til að hirða upp leifar af skoteldum og blysum í nágrenni sínu.