Hlýjan opnar dyrnar fyrir ungmennum

Ráðgjafarþjónusta fyrir ungmenni, Hlýjan, hefur opnað í Reykjanesbæ og er staðsett í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar að Hafnargötu 88. Þjónustan er ætluð ungmennum á aldrinum 13 til 17 ára og er þeim að kostnaðarlausu.

Hlýjan er opin öllum ungmennum og þar geta þau bókað einstaklingsviðtal við ráðgjafa sem hlustar, veitir stuðning og ráðleggur eftir þörfum. Markmiðið er að bjóða upp á snemmtæka íhlutun með því að skapa einfalt og aðgengilegt úrræði þar sem ungmenni geta leitað sér stuðnings án hindrana. Með því er leitast við að grípa fyrr inn í, áður en vandi vex og verður erfiðari viðureignar, og mæta ungmennum á þeirra eigin forsendum.

Lögð var sérstök áhersla á að hafa aðgengið sem einfaldast. Reynslan sýnir að ungmenni leita síður sér hjálpar ef ferlið er flókið eða krefst milliliða. Með því að fjarlægja slíkar hindranir er líklegra að þau leiti sér stuðnings fyrr og fái viðeigandi aðstoð á réttum tíma.

Að baki Hlýjunni stendur þverfaglegt teymi með víðtæka reynslu af starfi með börnum og ungmennum, meðal annars frá Björginni geðræktarmiðstöð, Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar auk heilbrigðisþjónustu. Í Hlýjunni fá ungmenni persónulega ráðgjöf og stuðning við að vinna úr sínum málum, sem getur falist í samtölum, ráðleggingum eða tengingu við önnur úrræði eftir þörfum hvers og eins. Stofnendur Hlýjunnar eru Gunnhildur Gunnarsdóttir, Karítas Lára Rafnkelsdóttir og Þórdís Halla Jónsdóttir. Fjöldi annarra fagaðila hefur einnig komið að þróun verkefnisins á ýmsum stigum, þar á meðal Díana Hilmarsdóttir, Davíð Már Gunnarsson og Ólafur Bergur Ólafsson.

Hugmyndin að Hlýjunni kviknaði árið 2021 þegar bæði ungmenni og fagfólk í Reykjanesbæ fóru að kalla eftir aðgengilegra stuðningsúrræði fyrir andlega líðan. Á Ungmennaþingi þann 7. október sama ár var andleg líðan eitt stærsta umræðuefnið og þar kom fram skýrt ákall um aukinn stuðning. Í kjölfarið kallaði Ungmennaráð Reykjanesbæjar eftir aukinni þjónustu á fundi með bæjarstjórn þann 16. nóvember. Samhliða þessu bentu bæði gögn og reynsla fagfólks til þess að þörf væri á slíkri þjónustu og varð Hlýjan til sem svar við þeirri þörf. Nafnið Hlýjan á sér einnig fallegan uppruna, en það kemur frá ungmenni í Reykjanesbæ, Kolbrúnu Dís Snorradóttur.

Reykjanesbær fagnar því að þetta fallega úrræði, Hlýjan, sé orðin að veruleika og telur hana mikilvægt skref í að efla þjónustu við ungmenni og styðja við andlega líðan þeirra.

Ungmenni geta sjálf bókað viðtal í Hlýjunni í gegnum NOONA appið og þarf hvorki tilvísun né boð til að nýta þjónustuna.