- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Laugardaginn 31. október er hrekkjavaka sem nýtur sífellt meiri vinsælda hér á landi. Víða hefur skapast sú hefð að börn gangi í hús og kalli „grikk eða gott".
Þar sem enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár. Veiran getur svo auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna.
Samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin. Höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag.
Skreytum glugga og hús. Endurvekjum jafnvel bangsaleikinn með því að pota vel völdum hrekkjavökukarakterum í gluggana. Það er vel hægt að skoða hús og glugga þótt við bönkum ekki upp á til að fá sælgæti.
Hægt er að fara í ratleik eða fjársjóðsleit og láta krakkana fá lista yfir hluti til að finna. Þetta gæti til dæmis verið skraut eins og hauskúpa, grasker, draugur, legsteinn og bangsi.
Nammi
Eftir göngutúrinn eða að leik loknum fara litlu ófreskjurnar heim og fá sælgæti að launum. Tilvalið að hafa hryllilegt kósíkvöld.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös