- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Í tilefni Ljósanætur opnar Listasafn Reykjanesbæjar sýninguna “horfur - prospects“ í listasal Duus Safnahúsa fimmtudaginn 31.ágúst kl.18:00. Um er að ræða einkasýningu Helga Hjaltalín Eyjólfssonar. Helgi er fæddur árið 1968 og eftir nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands stundaði hann nám við Kunstakademie Dusseldorf, AKI í Hollandi og San Francisco Art Institute. Hann hefur verið virkur í sýningarhaldi jafnt hér heima sem erlendis síðan á námsárunum og hefur sinnt ýmsum störfum tengdum myndlist.
Á þessari sýningu reynir (jaðarsettur) miðaldra kalmaður staðsettur í Höfnum, að útskýra fyrir sér ástand heimsins og hverjar horfunar séu. Í gegnum miðla myndlistarinnar þreifar hann á og gerir tilraun til að skilja og læra meira um þessa veröld sem við byggjum. Helgi Þorgils Friðjónsson skrifar í sýningarskrá og segir m.a.: „Þrátt fyrir fegurðina og drifkraftinn og framtíðarsýnina, jafn undarlegt og það virðist, er líka undirliggjandi ógn. Ekki á þessum stað sýnist mér, en í röngu samhengi, eins og sagan sýnir, geta jafnvel fegurstu hugmyndir orðið ógnvekjandi. Jafnvel frelsishugmyndir er hægt að steypa í sjálfhverft fast mót. Frelsi, jafnrétti og bræðralag, getur verið steypt í mót sérhópa. Þarna einhvers staðar er gegnumgangandi þráður í verkum Helga. Kyrrstaða milli ógnar, sögu og fegurðar.“
Sýningin stendur til 5.nóvember og nánari upplýsingar gefur listamaðurinn í síma 698-9120.
Við sama tækifæri verða opnaðar 3 aðrar listsýningar á vegum Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum: Blossi, samsýning Sossu og Antons Helga. Glyttur, einkasýning Elísabetar Ásberg. Próf/Tests, einkasýning Fríðu Dísar Guðmundsdóttur.
Nánari upplýsingar gefur safnstjóri: Valgerður Guðmundsdóttir 864-9190.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös