Hvatagreiðslur hækka í 45.000 kr.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur samþykkt að hvatagreiðslur til niðurgreiðslu á viðurkenndu íþrótta-, tómstunda- og listgreinastarfi fyrir foreldra barna á aldrinum 6 til 18 ára verði hækkaðar úr 40.000 í 45.000 kr. frá og með 1. janúar 2022.

Úthlutun hvatagreiðslna fer fram í gegnum Hvata og Sportable vefskráningar- og greiðslukerfi. Þegar nýskráningar hefjast er hægt að ráðstafa hvatagreiðslunni. Þegar það er gert er mikilvægt að haka í reitinn ,,nota frístundastyrk“ ef foreldrar kjósa það en þá dregst upphæðin frá æfingagjaldinu. Hvatagreiðslur og frístundastyrkur verða síðan greidd út mánaðarlega til íþrótta- og tómstundafélaganna.

Greiðslan getur að hámarki numið kostnaði við námskeið. Skilyrði er að um skipulagt starf sé að ræða, sem er stundað undir leiðsögn þjálfara, kennara eða leiðbeinanda.

Einungis er hægt að nýta hvatagreiðslu  einu sinni á hvert gjald . Skilyrði er að bæði barn og foreldri eigi lögheimili í Reykjanesbæ. Þær hvatagreiðslur sem búið er að ráðstafa í æfingagjöld er ekki hægt að endurgreiða eða bakfæra til viðkomandi. Hafi viðkomandi ekki nýtt sér styrkinn að hluta eða að fullu falla eftirstöðvar niður um áramót.

Ef iðkandi er að nýskrá sig í íþrótt þar sem æfingatímabilið er hálfnað eða langt liðið þarf viðkomandi að senda tölvupóst á hjordis@keflavik.is eða hamundur@umfn.is til að fá aðstoð við skráningu.

Fyrirspurnir skulu sendast á hvatagreidslur@reykjanesbaer.is

Hafþór Birgisson
Íþrótta- og tómstundafulltrúi
hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is