Hver á að hljóta Súluna?

Júlíus Freyr Guðmundsson hlaut Súluna árið 2021
Júlíus Freyr Guðmundsson hlaut Súluna árið 2021

Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Reykjanesbæjar

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2022, Súlunnar. Tilnefningar þarf að senda í síðasta lagi 9. október á netfangið sulan@reykjanesbaer.is.

Tilnefna skal einstakling, hóp eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bæjarfélaginu. Rökstuðningur þarf að fylgja tilnefningu.

Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna hér