- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Reykjanesbær boðar til íbúafundar um samning Reykjanesbæjar við Hrafnistu um rekstur nýs hjúkrunarheimilis að Nesvöllum miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 17.30 - 19.00. Gerð verður grein fyrir skipulagi nýja hjúkrunarheimilisins, kynntar niðurstöður samkomulagsins við Hrafnistu og „lev og bo“ hugmyndafræðin sem Hrafnista hyggst vinna eftir á heimilinu.
"Við viljum kynna hinum almenna íbúa þá jákvæðu þróun sem er að verða hér með tilkomu nýja hjúkrunarheimilisins. Þetta á ekki aðeins við aðstandendur þeirra sem nú þurfa hjúkrunarpláss, öll eigum við ættinga hér á Suðurnesjum sem kynnu að þurfa þessa aðstöðu síðar. Svo kemur kannski einhvern tíma að okkur sjálfum, svo ég vona að sem flestir nýti sér kynninguna" segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)