Íbúafundur um fjármál Reykjanesbæjar

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, heldur opinn íbúafund um fjármál Reykjanesbæjar fimmtudaginn 28. janúar nk. kl. 20:00 í Bergi, Hljómahöll.

Á fundinum mun bæjarstjóri fara yfir nýsamþykkta fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2016-2019 og framtíðarhorfur í rekstri sveitarfélagsins. Einng mun fundarmönnum gefast kostur á að koma með spurningar.