Íbúafundur um málefni hjúkrunarheimila

Nesvellir.
Nesvellir.


Boðað er til almenns íbúafundar um málefni hjúkrunarheimilanna að Nesvöllum og Hlévangi
miðvikudaginn 20. nóvember n.k. Fundurinn verður haldinn í þjónustumiðstöðinni að NESVÖLLUM og hefst kl. 17:30.

Á fundinum verður samningur og samkomulag Reykjanesbæjar og Hrafnistu/Sjómannadagsráðs kynnt. Einnig verður starfssemi Hrafnistu kynnt, hugmyndafræði og áherslur sem Hrafnista  mun vinna eftir  á hjúkrunarheimilunum að Nesvöllum og Hlévangi.

Vonumst til að sjá sem flest áhugafólk um öldrunarmál!

Reykjanesbær og Hrafnista