Íbúafundur um tvöföldun Reykjanesbrautar

Horft yfir Reykjanesbraut áleiðis að Reykjanesbæ. Innfellda myndin er af Jóni Gunnarssyni samgöngur…
Horft yfir Reykjanesbraut áleiðis að Reykjanesbæ. Innfellda myndin er af Jóni Gunnarssyni samgönguráðherra

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti í morgun að halda íbúafund fimmtudaginn 23. mars nk. kl. 20:00 í Stapa um tvöföldun Reykjanesbrautar. Jón Gunnarsson samgönguráðherra verður með innlegg á fundinum, en auk hans mun fulltrúi frá baráttuhópnum „Stopp hingað og ekki lengra!“ halda erindi og farið verður yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á Reykjanesbraut, ofan Reykjanesbæjar, sem miða að auknu umferðaröryggi.

Bæjaryfirvöld og íbúar Reykjanesbæjar telja brýnt að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar sem allra fyrst.
Umferðarþunginn er gríðarlegur með tilheyrandi slysahættu sem bæjarbúar og aðrir notendur Reykjanesbrautar hafa miklar áhyggjur af. Tilgangur fundarins er að varpa ljósi á stöðuna en einnig gefa íbúum tækifæri á að koma með spurningar og tjá sig.

Öllum þingmönnum Suðurkjördæmis og sveitastjórnarmönnum á Suðurnesjum verður boðið sérstaklega á fundinn.

Íbúafundurinn hefst kl. 20:00 og áætlað er að honum ljúki um kl. 22:00. Hver frummælandi hefur að hámarki 15 mínútur. Að erindum loknum munu mælendur setjast í pallborð og svara fyrirspurnum úr sal.

Dagskrá verður eftirfarandi:
Kl. 20:00: Ávarp frá forseta bæjarstjórnar og fundarsetning. Guðbrandur Einarsson
kl. 20:10: Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri, tekur við fundarstjórn
Kl. 20:15: Ávarp frá Stopp hópnum, hópi sem berst fyrir auknu umferðaröryggi á Reykjanesbraut. Ísak Ernir Kristinsson
Kl. 20:30: Yfirlit yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á Reykjanesbraut ofan Reykjanesbæjar sem miða að auknu umferðaröryggi; hringtorg og breytt lega vega. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson
Kl. 20:45: Ávarp samgönguráðherra. Jón Gunnarsson
Kl. 21:00: Framsögumenn setjast í pallborð og svara fyrirspurnum úr sal
Kl. 22:00: Dagskrárlok