- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nágrannavörslu hefur verið komið á í Starmóa í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annars og fylgjast með hýbílum þegar nágrannar eru að heiman.
Nágrannavarsla er nú á Þórsvöllum, Birkiteig, Sjafnarvöllum, Fífudal, Mávatjörn, Lágseylu, Kjarrmóa og Lyngmóa. Starmói er því níunda nágrannavörslugatan í sveitarfélaginu.
Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum.
Starfsmenn umhverfissviðs afhentu íbúum Starmóa upplýsingamöppu um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var komið fyrir á staur við Lyngmóa.
Íbúar og nágrannar í Reykjanesbæ sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Jónu Hrefnu Bergsteinsdóttur starfsmann umhverfis- og skipulagssviðs í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með „Nágrannavörslu".
Kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim. og kl. 9:00-15:00 fös