- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nágrannavörslu hefur verið komið við Hraundal í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með hýbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við ellefu götur í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnardeildar Lögreglunnar á Suðurnesjum. Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir starfsmaður Umhverfs- og skipulagssviðs afhenti íbúum við Hraundal upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var einnig komið fyrir á staurum við Hraundal.
Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.
Mynd: Jóna Hrefna starfsmaður Umhverfis- og skipulagssviðs afhenti íbúum við Hraundal upplýsingar um nágrannavörslu
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)