- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Listasafn Reykjanesbæjar opnar laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00 ljósmyndasýninguna ICELAND DEFENSE FORCE – ÁSBRÚ í sýningarsal safnsins í Duus Safnahúsum.
Snemma árs 2015 hélt Bragi Þór Jósefsson, ljósmyndari, sýninguna „Varnarliðið“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þar sýndi hann myndir sem hann hafði tekið á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli, stuttu eftir að Bandaríkjamenn yfirgáfu landið eftir 55 ára hersetu. Þar skráði Bragi Þór andrúmsloftið sem ríkti í yfirgefnum húsakynnum varnarliðsins, áður gegnsýrðum af bandarískum lífsmáta, nú mannlausum og framandi.
Þar sem Suðurnesjamenn voru í nánara sambandi við varnarliðið en flestir aðrir Íslendingar, þótti Listasafni Reykjanesbæjar ástæða til að setja upp nýja útgáfu af þessari sýningu Braga Þórs í Duus Safnahúsum í Keflavík, og féllst hann á að auka við myndröðina ljósmyndum af „framhaldslífinu“ á flugvallarsvæðinu, svipmyndum af lifnaðarháttum nýrra íbúa þar sem nú heitir að „Ásbrú“.
Í þessum ljósmyndum skrásetur Bragi Þór það sem sýningarstjóri, Aðalsteinn Ingólfsson, kallar „áru yfirgefinna staða“, hina þöglu nærveru horfinna einstaklinga úr öðrum menningarheimi, hverra daglega líf og örlög setja mark sitt á eyðilegar vistarverur og opinbera staði. Í framhaldinu sýnir hann hvernig ný kynslóð Íslendinga mótar þessa fyrrum útvarðstöð Bandaríkjamanna með sínum hætti.
Bragi Þór Jósefsson lauk námi í ljósmyndun frá Rochester Institute of Technology í Bandaríkjunum árið 1987 og hóf í kjölfarið störf sem atvinnuljósmyndari. Hann hefur myndað fyrir fyrirtæki og einkaaðila, jafnt sem íslensk og erlend tímarit. Auk þess hefur hann haldið sýningar á ljósmyndum sínum, tekið þátt í samsýningum samtímaljósmyndara og komið að bókaútgáfu.
Sýningin „Iceland Defense Force – Ásbrú“ stendur frá 6. febrúar til 24. apríl og er í Duus Safnahúsum þar sem opið er alla daga frá 12.00 - 17.00.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)