Útboð Ríkiskaupa vegna rammasamnings um þjónustu iðnmeistara

Mynd af vef Ríkiskaupa
Mynd af vef Ríkiskaupa

Reykjanesbær sem aðili að rammasamningum Ríkiskaupa hvetur iðnmeistara á Suðurnesjum til að taka þátt í útboði fyrir rammasamning iðnmeistara.

Reykjanesbær og stofnanir vilja stuðla að hagstæðum innkaupum, byggðum á virkri samkeppni, jafnræði, og viðskiptum við heimamenn. Reykjanesbær er hinsvegar bundinn af því að kaupa verkframkvæmdir og þjónustu af þeim sem eru innan rammasamnings Ríkiskaupa.

Tafla 1. Rammasamningar Ríkiskaupa við iðnmeistara

SAMNINGUR                                                        SAMNINGSLOK
RK 17.02   Blikksmíði                                         30.6.2020
RK 17.03   Dúklagning                                       30.6.2020
RK 17.04   Málmiðnaður                                 30.6.2020
RK 17.05   Málaraiðn                                          30.6.2020
RK 17.06   Múrverk                                             30.6.2020
RK 17.07   Pípulagnir                                          30.6.2020
RK 17.08   Rafiðnaður                                      30.6.2020
RK 17.09   Skrúðgarðyrkja                           30.6.2020
RK 17.10   Trésmíði                                             30.6.2020

Hlutverk Ríkiskaupa er að stuðla að sem mestri hagkvæmni í öflun aðfanga til opinbers rekstrar, ríkis og sveitarfélaga, með áherslu á virka samkeppni, jafnræði og nýsköpun.

Unnið er að gerð útboðsgagna vegna nýrra rammasamninga um þjónustu iðnmeistara. Gömlu samningarnir renna út 30. júní 2020. Boðin verður út þjónusta iðnmeistara á viðhaldi, viðbótum og endurnýjun á fasteignum í eigu ríkisins eða annarra opinberra aðila.

Hvað er rammasamningur?

Rammasamningur: Samningur sem einn eða fleiri kaupendur gera við eitt eða fleiri fyrirtæki í þeim tilgangi að slá föstum helstu skilmálum einstakra samninga sem gerðir verða á tilteknu tímabili, einkum að því er varðar verð og fyrirhugað magn.

Rammasamningsútboð er formlegt útboðsferli sem Ríkiskaup framkvæma fyrir hönd margra kaupenda þar sem tiltekin atriði útboðs eru ekki fest niður t.d. magn og umfang. Í kjölfar útboðsins er gerður samningur, rammasamningur (RS), við einn eða fleiri birgja um innkaup á vöru og/eða þjónustu á samningstímanum sem getur verið allt að fjögur (4) ár frá undirritun rammasamningsins.

Fari innkaup yfir ákveðna fjárhæð, sem tiltekin er eftir atvikum í sérhverjum rammasamningi, eru þau boðin út í örútboði meðal rammasamningshafa. Með öðrum orðum er efnt til samkeppni milli seljenda um þau atriði sem ekki voru fest niður í sjálfum rammasamningnum.

Örútboð: Innkaupaferli þar sem kaupandi leitar, með hæfilegum fyrirvara, skriflegra tilboða meðal rammasamningshafa sem efnt geta samning á grundvelli hlutlægra viðmiðana sem fram koma í útboðsskilmálum rammasamningsins.

Kaupendur geta í smærri innkaupum gengið að föstum afslætti á vöru og þjónustu. Í stærri innkaupum er farið í örútboð sem eru keppni milli seljenda innan viðkomandi rammasamnings um að bjóða kaupanda hagstæðasta verð. Þannig er virk samkeppni milli seljenda á samningstíma.

Markmið með rammasamningum er að búa til tæki fyrir opinbera aðila til að gera sameiginleg stórinnkaup og eru ákvæði í rammasamningum um heimild til sameiginlegra örútboða innan þeirra. Með þessu móti geta opinberir aðilar gert mjög hagkvæm innkaup í krafti samvinnu og samlegðar. Ríkiskaup taka að sér slík sameiginleg innkaup fyrir opinbera aðila, sé eftir því leitað, til að ná fram sem bestum kjörum.

Ríkiskaup fyrirhugar kynningar á rammasamningum með Samtökum iðnaðarins í tengslum við félagsfundi hjá þeim og að líkindum verður einn þeirra í Reykjanesbæ. Aðrir þrír fundir verða haldnir hjá Ríkiskaupum í Borgartúni 7c og eru þeir fyrirhugaðir í lok mars og hinir tveir eftir páska. Jafnvel verður sett inn kennslumyndband á vefinn, þannig að menn geti séð hvernig þeir bera sig að við skil á tilboði. Iðnmeistarar eru hér með hvattir til að kynna sér tilboðsgerð í Rammasamningi hjá Ríkiskaupum. Með því að smella hér opnast vefur Ríkiskaupa

Það er því mjög mikilvægt að iðnmeistarar á Suðurnesjum taki þátt í þessu útboði til að vera gjaldgengir til viðskipta við Reykjanesbæ í framtíðinni og viljum við ítreka hvatningu okkar til heimamanna að taka þátt.

Kristinn Þór Jakobsson                                                                     Guðlaugur H. Sigurjónsson
innkaupastjóri Reykjanesbæjar                                                 sviðsstjóri umhverfisviðs Reykjanesbæjar.