Íslandsleikar Allir með

Helgina 28. til 29. mars fara fram Íslandsleikar Allir með í Reykjanesbæ. Um er að ræða íþróttahátíð fyrir börn og ungmenni sem finna sig síður í hefðbundnu íþróttastarfi og eru með fötlun og eða aðrar stuðningsþarfir.

Á Íslandsleikunum verður keppt í þremur íþróttagreinum, fótbolta, körfubolta og handbolta. Auk þess verða opnar æfingar í sömu greinum þar sem þátttakendur geta komið og prófað sig áfram í íþróttunum.

Hægt er að skrá heilu liðin til leiks en einstaklingar geta einnig skráð sig og verða þá settir í lið. Leikarnir eru ætlaðir iðkendum á öllum aldri og er von á keppendum víðs vegar að af landinu.

Gisting verður í boði í skólastofum í Holtaskóla bæði á föstudag og laugardag. Þá verður einnig boðið upp á morgunverð, hádegisverð og kvöldverð fyrir þátttakendur á meðan á leikunum stendur.

Skráning fer fram í gegnum Abler og má finna skráningarhlekkinn hér.