- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Jóhann Helgason og Magnús Þór Sigmundsson voru í dag, á þjóðhátíðardaginn 17. júní, útnefndir listamenn Reykjanesbæjar 2026–2030 við hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins í Reykjanesbæ.
Nafnbótin Listamaður Reykjanesbæjar er heiðursviðurkenning sem veitt er listamanni sem hefur með störfum sínum skarað fram úr og haft markverð áhrif á lista- og menningarlíf eða aukið hróður Reykjanesbæjar á sínu sviði. Nafnbótin gildir fyrir tímabilið 2026–2030 og er veitt í lok hvers kjörtímabils samkvæmt reglum Reykjanesbæjar.
Þótt nafnbótin sé að jafnaði veitt einum listamanni í senn þótti eðlilegt að veita hana að þessu sinni þeim Jóhanni Helgasyni og Magnúsi Þór Sigmundssyni sameiginlega. Samstarf þeirra og framlag til íslenskrar tónlistar er ríkur þáttur í þeirri tónlistararfleifð sem hefur vaxið og dafnað í Reykjanesbæ.
Magnús og Jóhann hafa með lagasmíðum sínum, flutningi og fjölbreyttum störfum á vettvangi tónlistar skipað sér í hóp áhrifamestu tónlistarmanna landsins. Verk þeirra hafa notið mikilla vinsælda og orðið hluti af sameiginlegum menningararfi þjóðarinnar.
Við val á Listamönnum Reykjanesbæjar var horft til þeirra sjónarmiða sem fram koma í reglum um nafnbótina, meðal annars listræns árangurs, áhrifa og stöðu á sínu sviði, framlags til menningarlífs og tengsla við sveitarfélagið.
Með nafnbótinni fylgir viðurkenningarskjal, verðlaunafé og listmunurinn Lífangar eftir leirlistakonuna Arnbjörgu Drífu Káradóttur. Drífa sækir innblástur sinn í líf, nýsköpun og náttúruleg form. Lífangar að ýmsum stærðum og gerðum spretta fram sem hluti af lífsins heild og áskorunum en þó hver um sig sjálfstæður með sína eiginleika, líkt og ný stef og ný tilbrigði sem listamenn Reykjanesbæjar hafa auðgað okkur með.
„Fáir listamenn hafa átt jafn stóran þátt í að halda nafni Reykjanesbæjar á lofti sem tónlistarbæjar. Verk þeirra hafa fylgt þjóðinni um áratugaskeið og um leið minnt okkur á þá sterku tónlistarhefð sem hér hefur blómstrað. Það er því sérstaklega ánægjulegt að heiðra þá með nafnbótinni Listamenn Reykjanesbæjar,“ sagði Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri.
Reykjanesbær óskar Jóhanni Helgasyni og Magnúsi Þór Sigmundssyni innilega til hamingju með nafnbótina og þakkar þeim fyrir ómetanlegt framlag þeirra til íslenskrar tónlistar og menningarlífs.

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)